Algengar spurningar
Spurningar
og svör
Það sem fólk spyr okkur oftast um. Finnurðu ekki svarið? Hringdu í 557 8833 eða sendu okkur línu.
Hvar er Kjöthúsið?
Á Smiðjuvegi 24D í Kópavogi, við Rauðu götuna. Þar er bæði kjötvinnslan og verslunin.
Kortið og leiðarlýsingin eru á síðunni Hafa samband.
Hvenær er opið?
Opið virka daga frá kl. 8:00 til 16:00
Hvernig panta ég?
Fyrirtæki og einstaklingar panta í síma 557 8833, í tölvupósti á kjothusid@kjothusid.is eða með pöntunarforminu hér á vefnum.
Pöntunin berst okkur og við höfum samband til að staðfesta hana.
Er greitt á vefnum?
Nei. Á vefnum sendir þú pöntun eða fyrirspurn, en ekkert er greitt þar.
Í versluninni á Smiðjuvegi er hægt að greiða með korti eða reiðufé.
Eru verðin með virðisaukaskatti?
Verðin á verðlistunum eru án virðisaukaskatts, eins og stendur á hverjum lista.
Af hverju stendur „um það bil“ við kílóin í pöntun?
Kjöt sem er selt eftir vigt er vigtað þegar pöntunin er tekin til. Endanlegt verð miðast við það sem vigtin sýnir.
Seljið þið til fyrirtækja?
Já. Vörurnar okkar eru notaðar á veitingastöðum, í mötuneytum, skólaeldhúsum og leikskólum víða um land, og við framleiðum vörur sérpakkaðar fyrir verslanir.
Sölumennirnir okkar koma gjarnan í heimsókn og kynna starfsemina.
Getið þið skorið eftir mínum óskum?
Já. Við vinnum vörurnar eftir þínum þörfum: segðu okkur í hvað kjötið á að fara, hversu þykkt það á að vera skorið og hvernig það á að vera pakkað.
Getið þið framleitt fyrir fólk með ofnæmi?
Kjöthúsið hefur sérframleitt vörur fyrir leikskóla og sjúkrastofnanir, fyrir fólk með sérþarfir og ýmis ofnæmi.
Hafðu samband og við förum yfir innihald varanna með þér.
Hver er réttur kjarnhiti?
Kjarnhiti segir til um hversu vel kjötið er eldað. Þessi tafla er fyrir nautasteik, úr uppskriftabók Kjöthússins. Notaðu kjöthitamæli í þykkasta hluta kjötsins.
| Lítið steikt (rare) | 52 °C |
|---|---|
| Minna en meðalsteikt (medium rare) | 54 °C |
| Meðalsteikt (medium) | 58 °C |
| Vel meðalsteikt (medium well) | 64 °C |
| Gegnumsteikt (well done) | 70 °C |
Hvað er Sparikassinn?
Kassi af 1. flokks ungnautakjöti í 500 gramma pakkningum: hakk, gúllas, snitsel, mínútusteik og hamborgarar. Innihald kassanna er á síðunni um Sparikassann. Hringdu í 557 8833 til að fá núgildandi verð.
Er lágmarkspöntun?
Við tökum við pöntunum, sama hversu litlar eða stórar þær eru.
Hvenær er hægt að sækja jólapöntun?
Afhent 17. til 23. desember frá kl. 12:00 til 17:00. Laugardaginn 19. desember frá kl. 11:00 til 13:00 og lokað sunnudaginn 20. desember.
Þú pantar á síðunni Jólapantanir og velur þar dag og tíma.
Hvenær er hægt að sækja áramótapöntun?
Afhent 28. til 30. desember frá kl. 12:00 til 17:00. Lokað á gamlársdag.
Þú pantar á síðunni Jólapantanir og velur þar dag og tíma.
Er hægt að kaupa gjafabréf?
Já. Gjafabréfin hjá Kjöthúsinu eru vinsæl gjöf fyrir þá sem eiga allt. Það eina sem við þurfum er upphæð gjafabréfsins og það verður tilbúið til afhendingar á þeim tíma sem þú óskar eftir.
Þú pantar gjafabréfið á síðunni Gjafabréf.