Kjötið
unnið eftir
þínum þörfum
Kjötvinnsla og verslun á Smiðjuvegi 24D í Kópavogi. Hjá okkur starfar eingöngu fagfólk með margra ára reynslu, fyrir heimili og eldhús fyrirtækja. Gæði á góðu verði.

Núna
Jólamaturinn
Hamborgarhryggur, hangikjöt og hreindýr fyrir hátíðirnar. Pantaðu tímanlega.
JólapantanirTilboð mánaðarins
Sparitilboð nóvember 2026
- Blandað hakk 2.899 kr/kg
- Grísa Gordon Blue 2.999 kr/kg
- Nauta gúllas, stroganoff 3.999 kr/kg
- Grísa snitzel í raspi 2.899 kr/kg
- Folalda snitzel í raspi 3.899 kr/kg
- Hreindýraborgarar 5.399 kr/kg
- Lamba lærissneiðar í raspi 4.199 kr/kg
- Lamba lundir 8.499 kr/kg
- Lamba snitzel í raspi 3.899 kr/kg
- Partý skinka, foreldað 2.899 kr/kg
Nautakjöt
Hakk, gúllas, snitsel og steikur. Segðu okkur í hvað á að nota kjötið og við skerum það eftir því.
Lamb
og svín
Læri, hryggur, hnakki og bitar fyrir pönnuna. Ræðum skurð, magn og pökkun áður en við vinnum vöruna.

Nautið
Veldu hluta til að sjá hvað kemur þaðan.
Hlutar nautsins
Nautið skiptist í háls, bóg, framhrygg, spjaldhrygg, mjaðmasteik, læri, klump, bringu, síðu og skanka. Heitin og staðsetningarnar fylgja Kjötbókinni.
Verðlistar
Verð eru án vsk.
Uppskriftir
Allar uppskriftirKjötdagarnir
Fróðleiksmolar og hversu langt er í næsta kjötdag.
-
Kjötkrókur kemur til byggða
Kjötkrókur, eða Ketkrókur eins og hann heitir í gömlu sögunum, kemur á Þorláksmessu. Þá var hangikjötið soðið, og hann krækti sér í bita með löngum krókstaf niður um strompinn.
-
Aðfangadagur
Hamborgarhryggur og rjúpa eru meðal þess sem Íslendingar hafa á borðum á aðfangadagskvöld, og hamborgarhryggurinn er vinsælastur.
-
Bóndadagur
Þorrinn hefst á bóndadegi. Á þorrablótunum er meðal annars hangikjöt, sviðasulta, lifrarpylsa og blóðmör á borðum.
-
Bolludagur
Rjómabollurnar hafa lengi sett svip á daginn, og sumir hafa þann sið að hafa kjötbollur í kvöldmatinn á bolludaginn.
-
Sprengidagur
Saltkjöt og baunir eru hefðbundni maturinn á sprengidag og koma á borð á mörgum heimilum.
-
Kjötdagurinn í Úrúgvæ Erlendis
Er til sérstakur kjötdagur? Já, í Úrúgvæ. Þar er kjötinu helgaður dagur 29. maí ár hvert, Día Nacional de la Carne.
-
Pylsudagurinn í Bandaríkjunum Erlendis
Íslenskur pylsudagur er ekki til, en í Bandaríkjunum er pylsunni helgaður dagur, þriðji miðvikudagurinn í júlí.

Verslunin
Smiðjuvegur 24D í Kópavogi, við Rauðu götuna. Kíktu við eða hringdu og við tökum vöruna til.

Fyrir fyrirtæki
Veitingastaðir, mötuneyti, skólaeldhús, leikskólar og verslanir. Skurður eftir óskum, loftþéttar umbúðir og sérpökkun fyrir verslanir.

