Fara í efni

Uppskriftir · Hátíðarmatur

Hreindýralundir með villisveppasósu

Úr uppskriftabók Kjöthússins.

Hreindýralundir

Hráefni

  • 1 kg hreindýralundir
  • OLIFA steikingarolía
  • salt og pipar

Aðferð

  1. Kjötið er brúnað á mjög heitri pönnu í olíunni í 2 til 3 mínútur á hvorri hlið og kryddað með salti og pipar.
  2. Eldað í 120 °C heitum ofni í 12 til 15 mínútur, eftir stærð.

Villisveppasósa

Hráefni

  • ½ l villisoð
  • 25 g þurrkaðir villisveppir
  • 1 dl púrtvín
  • salt og pipar
  • 1 peli rjómi
  • smjörbolla til að þykkja
  • 1 msk. bláberjasulta
  • smjörklípa

Aðferð

  1. Sveppirnir eru lagðir í bleyti þar til þeir verða mjúkir. Þá eru þeir saxaðir og steiktir í smjörinu.
  2. Púrtvíni, villisoði og sultu bætt í og allt látið malla við hægan hita í 25 mínútur.
  3. Að lokum er rjómanum bætt út í og þykkt ef þurfa þykir, kryddað með salti og pipar.

Sultaður rauðlaukur

Hráefni

  • 500 g rauðlaukur
  • 2 msk. OLIFA olía
  • ½ dl sykur
  • ½ dl púrtvín
  • 2 dl rifsberjahlaup
  • 2 msk. rauðvínsedik
  • 2 dl vatn
  • salt og pipar

Aðferð

  1. Laukurinn afhýddur og skorinn í lauf eða þunnar sneiðar.
  2. Olía og laukur sett í pott og steikt í 1 mínútu. Þá er öllu bætt út í og látið krauma í 1 klukkustund.

Waldorf salat

Hráefni

  • 2 græn epli, kjarnhreinsuð og skorin í bita
  • 2 dl valhnetur, saxaðar
  • 25 græn vínber
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 2 til 3 msk. þeyttur rjómi

Aðferð

  1. Öllu blandað saman í skál og látið standa í nokkra stund áður en borið er fram.