Hreindýrafile
Hráefni
- 1 kg hreindýrafile
- OLIFA steikingarolía
- salt og pipar
Aðferð
- Kjötið er brúnað á mjög heitri pönnu í olíunni í 3 til 4 mínútur á hvorri hlið og kryddað með salti og pipar.
- Eldað í 120 °C heitum ofni í 20 til 25 mínútur, eftir stærð.
Bláberjasósa
Hráefni
- ½ l villisoð
- 1 dl bláberjasulta
- 1 tsk. ferskt timían
- nokkur bláber (ekki nauðsynlegt)
- smjörbolla til að þykkja
- 1 peli rjómi
- 1 dl púrtvín
Aðferð
- Villisoðið, púrtvín, timían og bláberjasulta sett í pott og soðið niður um það bil 10%. Þá er sósan þykkt og rjóminn settur út í.
- Gott er að setja nokkur bláber í sósuna áður en hún er borin fram.