Fara í efni

Um okkur

Um okkur

Kjöthúsið ehf. samanstendur af kjötvinnslu, heildsölu og sælkeraverslun að Smiðjuvegi í Kópavogi. Hjá okkur starfar eingöngu fagfólk með margra ára reynslu í vinnslu og þjónustu á kjötvörum.

Kristinn Jakobsson, eigandi Kjöthússins, í búðinni á Smiðjuvegi
Kjötborðið í verslun Kjöthússins á Smiðjuvegi 24D

Kjöthúsið var stofnað vorið 1993 við Smiðjuveg í Kópavogi, þar sem það starfar enn þann dag í dag. Eigandi Kjöthússins er Kristinn Jakobsson, kjötiðnaðarmeistari og fyrrum knattspyrnudómari.

Kjöthúsið ehf. býður eingöngu upp á „gæði og gott verð“ eins og segir í vörumerki fyrirtækisins. Kjöthúsið ehf. býðst til að vinna vörurnar eftir ykkar þörfum og óskar eftir góðu samstarfi, persónulegri þjónustu og lofar gæðum á góðu verði.

Starfsfólk Kjöthússins ehf. er mjög meðvitað um hvernig gæðavara er framleidd og kappkostar að nota sem minnst af aukaefnum í framleiðsluvörur fyrirtækisins, til dæmis eru ekki notaðar neinar eggjavörur eða mjólkurvörur og því síður svokallað „þriðja kryddið“, MSG. Kjöthúsið ehf. hefur sérframleitt vörur fyrir leikskóla og sjúkrastofnanir sem snúa að þörfum einstaklinga með sérþarfir, sbr. fólk með ýmis ofnæmiseinkenni.

Við framleiðum mikið úrval af vörum fyrir veitingastaði, mötuneyti, skólaeldhús og leikskóla víða um landið, og sérpakkaðar vörur fyrir verslanir.

Sölumenn okkar heimsækja fyrirtæki gjarnan og kynna starfsemina betur.

Staðsetning
Smiðjuvegur 24D, 200 Kópavogur
Fyrir hverja
Heimili, veitingastaði, mötuneyti, skóla og verslanir
Starfsfólk
17 manns
Nautakjöt skorið í vinnslunni