Fara í efni

Kjarnhiti

Kjarnhiti

Kjarnhitinn segir til um hversu vel kjötið er eldað. Stingdu kjöthitamæli í þykkasta hluta kjötsins, ekki alveg upp að beini, og taktu það af hitanum þegar talan er komin.

Naut

Kjarnhiti fyrir nautasteik
Lítið steikt (rare)52 °C
Minna en meðalsteikt (medium rare)54 °C
Meðalsteikt (medium)58 °C
Vel meðalsteikt (medium well)64 °C
Gegnumsteikt (well done)70 °C
Úr uppskriftabók Kjöthússins.

Sömu tölur og í bæklingunum Kjöthúsið mælir með og Gott á grillið.

Lamb

Kjarnhiti fyrir lambakjöt
Lítið steikt55 °C
Meðalsteikt60 til 65 °C
Gegnumsteikt70 til 75 °C
Heimild: Gott í matinn, eftir leiðbeiningum lambakjot.is. Hitinn miðast við kjötið áður en það hvílir.

Hakk, hvort sem það er úr lambi, nauti eða svíni, á alltaf að gegnumsteikja í 75 °C kjarnhita. Það er ráðlegging Matvælastofnunar, því við hökkun geta bakteríur borist um allt kjötið. Leiðbeiningar MAST