
Lambafile
Hráefni
- 1 kg lambafile, fituhreinsað
- 50 g parmesanostur, fínt rifinn
- ½ box ferskt oreganó
- 1 box steinselja
- ½ hvítlauksrif, fínt skorið
- 80 g brauðraspur
- svartur pipar, nýmalaður
- sjávarsalt
Aðferð
- Setjið allt nema kjötið í matvinnsluvél og látið ganga í um það bil 2 mínútur, eða þar til raspurinn er orðinn fagurgrænn.
- Dreifið raspinum á bakka og veltið kjötinu upp úr blöndunni þannig að það hjúpist vel allan hringinn.
- Setjið í eldfast mót inn í 180 °C heitan ofn í 15 mínútur.
- Takið formið út úr ofninum, leggið bökunarplötu yfir til að loka hitanum og látið standa þannig í 15 mínútur.
- Skerið kjötið í fallegar sneiðar og kryddið með salti og pipar. Farið gætilega í saltið því parmesanosturinn er saltur.
Rauðvínssósa
Hráefni
- 700 g villisoð (Oscar)
- 6 sneiðar bacon, saxaðar
- ½ laukur
- 250 ml rauðvín
- 2 tsk. tómatpúrra
- smjörbolla (100 g hveiti og 75 g smjör)
- 1 msk. smjör
- salt og pipar
Aðferð
- Bacon og laukur brúnað í smjöri. Bætið við soðinu, rauðvíni, tómatpúrru, salti og pipar.
- Látið malla við vægan hita í 20 mínútur. Þykkið sósuna með smjörbollu ef þurfa þykir.