Fara í efni

Uppskriftir · Í ofninn

Nautalund með búrgundarsósu

Úr uppskriftabók Kjöthússins.

Heil lund steikt og skorin í sneiðar

Nautalund

Hráefni

  • 1 kg nautalund, látið hreinsa sinina af
  • smjör
  • OLIFA olía
  • salt og pipar

Aðferð

  1. Kjötið er brúnað við mjög mikinn hita á pönnu á öllum hliðum og kryddað með salti og pipar.
  2. Setjið í 120 °C heitan ofn og notið kjöthitamæli. Bakið lundina í 54 til 57 °C kjarnhita, eftir því hve vel þið viljið hafa kjötið steikt. Það getur tekið allt að 30 til 40 mínútur.
  3. Takið lundina út og látið standa í 8 til 10 mínútur áður en hún er skorin.

Búrgundarsósa

Hráefni

  • 3 msk. OLIFA olía
  • 3 sneiðar bacon
  • 12 perlulaukar
  • 12 litlir sveppir
  • ½ tsk. timían
  • 3 lárviðarlauf
  • ½ tsk. pipar
  • 1 tsk. tómatpúrra
  • 4 dl rauðvín
  • 2 msk. rauðvínsedik
  • 4 dl gott villibráðasoð (Oscar)
  • sósujafnari
  • 30 g kalt smjör

Aðferð

  1. Brúnið baconið, laukinn og sveppina í olíu í potti í 1 mínútu.
  2. Bætið kryddi, tómatpúrru, rauðvíni og ediki við og sjóðið niður um þrjá fjórðu.
  3. Hellið villibráðasoðinu í pottinn og þykkið með sósujafnara.
  4. Takið pottinn af hellunni og hrærið smjörinu út í með písk.

Kjarnhiti

Kjarnhiti fyrir nautasteik
Lítið steikt (rare)52 °C
Minna en meðalsteikt (medium rare)54 °C
Meðalsteikt (medium)58 °C
Vel meðalsteikt (medium well)64 °C
Gegnumsteikt (well done)70 °C
Úr uppskriftabók Kjöthússins.