Fara í efni

Uppskriftir · Á grillið

Nauta rib-eye á grillið

Alvöru nautasteik.

Þrjár kryddaðar rib-eye steikur á skurðbretti Kjöthússins

Nauta rib-eye

Hráefni

  • 250 til 300 g nauta rib-eye steikur, sérvaldar
  • marinering frá Kjöthúsinu

Aðferð

  1. Mikilvægt er að kjötið sé látið standa nógu lengi úti til að það nái stofuhita í kjarna.
  2. Grillið er hitað mjög vel og kjötið kryddað með sérvöldum marineringum Kjöthússins.
  3. Grillað í 1 til 2 mínútur á hvorri hlið á sem mestum hita. Þá er steikin færð yfir á þann hluta grillsins sem er ekki undir eldi og grilluð í 3 til 6 mínútur, eftir því hve mikið hún á að vera elduð.
  4. Kjötið er tekið af grillinu og látið standa á fati í 3 til 5 mínútur og jafna sig áður en það er borið fram.

Kjarnhiti

Kjarnhiti fyrir nautasteik
Lítið steikt (rare)52 °C
Minna en meðalsteikt (medium rare)54 °C
Meðalsteikt (medium)58 °C
Vel meðalsteikt (medium well)64 °C
Gegnumsteikt (well done)70 °C
Úr uppskriftabók Kjöthússins.