Fara í efni

Uppskriftir · Jólin

Hamborgarhryggur með hunangsrauðvínssósu

Úr uppskriftabók Kjöthússins.

Hamborgarhryggur í sneiðum með brúnuðum kartöflum

Hamborgarhryggur

Hráefni

  • 3 kg hamborgarhryggur
  • 2 litlar dósir tómatpúrra
  • ½ l maltöl

Aðferð

  1. Hryggurinn er soðinn rólega í 50 mínútur í vatni, malti og tómatpúrru.

Glassering

Hráefni

  • 1 bolli púðursykur
  • ½ bolli tómatsósa
  • ½ bolli sætt sinnep
  • 1½ bolli rauðvín

Aðferð

  1. Öllu blandað saman og látið krauma í um það bil 5 mínútur. Hryggurinn penslaður með glasseringunni og settur í 200 °C heitan ofn í 15 mínútur.

Hunangsrauðvínssósa

Hráefni

  • 150 g smjör
  • 1 laukur, smátt saxaður
  • 1 tsk. hvítur pipar
  • ½ flaska rauðvín
  • 1½ l soð af hryggnum
  • 175 g smjörbolla (100 g hveiti)
  • ½ l rjómi
  • ½ dós hunang
  • 1 msk. sinnep
  • kjötkraftur

Aðferð

  1. Laukurinn er látinn krauma í smjöri. Piparnum bætt út í ásamt rauðvíni, soði, hunangi, sinnepi og rjóma. Kryddið með kjötkrafti og þykkið með smjörbollu ef þurfa þykir.